Byggingaframkvæmdir á iðnaðarsvæðinu Auric á Indlandi hafa gengið vel í haust, enda mikill kraftur í framkvæmdunum og um 450 byggingarverkamenn að störfum á svæðinu. Auric er rétt austan við borgina Aurangabad í Maharashtra-héraði á Indlandi. Kohinoor, sem Hampiðjan eignaðist 75,1% hlut í á síðasta ári, stendur fyrir framkvæmdunum.
Þess má geta að indversk stjórnvöld hafa breytt nafni borgarinnar Aurangabad í Chhatrapati Sambhajinagar. Í daglegu tali er þó seinni hluti hins nýja nafns, Sambhajinagar, gjarnan notaður samhliða eldra nafninu Aurangabad.

Fyrri stóra byggingin, sem er 28.000 m², er nú nær fullklædd að utan og frágangur þaks á lokastigi. Unnið er að raflögnum innanhúss og uppsetningu sprinklerkerfis. Í byggingunni verður framleiðsla á hnútalausum netum og fullbúnum fiskeldiskvíum fyrir fiskeldisþjónustufyrirtækið Eldi, sem er að fullu í eigu Hampiðjunnar. Gert er ráð fyrir að starfsemi í byggingunni geti hafist innan fárra vikna.
Hin stóra framleiðslubyggingin, sem einnig er 28.000 m², er sömuleiðis komin vel á veg og búið er að reisa stærstan hluta stálgrindarinnar. Í næstu viku verður hafist handa við að setja þak á bygginguna og klæða veggi hennar. Þar verður þráðaframleiðsla, flétting á netagarni og netahnýting.
Auk stóru framleiðslubygginganna er unnið að byggingu 1.200 m² þjónustuhúss fyrir starfsmenn, þar sem verður almenn starfsmannaaðstaða ásamt miðlægu eldhúsi. Einnig er verið að byggja sérstakt hús fyrir spennubreyta og gufukatla.
Framkvæmdir við 2.000 m² skrifstofubyggingu hefjast á næstu vikum, þegar lengra verður komið með framleiðslusalina. Þegar öllum þessum framkvæmdum er lokið verður enn til staðar byggingarleyfi fyrir 16.000 m² framleiðslusal til viðbótar, komi síðar fram þörf fyrir aukið framleiðslurými.
Hér fyrir neðan má sjá drónamyndband af byggingarsvæðinu, tekið 21. október.

