ELDI, fiskeldishluti Hampiðjusamstæðunnar, tekur þátt í Lagarlífi 2026 sem fram fer í Hörpu dagana 29. og 30. september. Þar koma saman aðilar úr íslensku og alþjóðlegu fiskeldi til að miðla þekkingu, ræða þróun greinarinnar og kynna nýjar lausnir og tækni.
Hampiðjan hefur áður kynnt starfsemi sína á sviði fiskeldis á Lagarlífi með Vonin í Færeyjum og Mørenot í Noregi en nú undir ELDI eftir að fiskeldishluti þessara fyrirtækja hefur verið sameinuð í eitt alþjóðlegt félag í byrjun þessa árs. Undir ELDI sameinast þekking, framleiðsla og þjónusta samstæðunnar fyrir fiskeldi á sviði eldisbúnaðar, þjónustu og tæknilausna fyrir sjókvíaeldi.
Á sýningunni verða kynntar nokkrar af þeim lausnum sem ELDI hefur þróað fyrir sjókvíaeldi, þar á meðal BioSeize, kerfi sem safnar fóðurleifum og öðrum lífrænum úrgangi áður en það fellur til botns, MarWall, hálflokuð lausn fyrir sjókvíar, og MarDeep, niðursökkvanlegt eldiskerfi.
Þróun þessara lausna hefur haldið áfram frá síðasta Lagarlífi og allar þrjár lausnirnar hafa nú verið reyndar og teknar í notkun í tilraunaskyni
BioSeize hefur meðal annars tekið stórt skref fram á við með samningi við norska fiskeldisfyrirtækið Lerøy Sjøtroll um uppsetningu kerfisins á eldisstað við Blom í Noregi. Þar hefur ConeCollect-neti komið fyrir undir kvínni ásamt Fish/It dælukerfinu til að safna efninu og flytja það áfram til meðhöndlunar og mögulegrar nýtingar.
MarWall hefur verið sett upp hjá Bremnes Seashore i Bømlo í Noregi og verið þar í notkun frá því í sumarbyrjun og kerfið lofar góðu.
MarDeep hefur verið fullhannað og prófað í notkun og nú er beðið eftir leyfi til að setja fisk í kvíina.
Lagarlíf hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir íslenskt og alþjóðlegt lagareldi. Þar er fjallað um þróun greinarinnar, rannsóknir, tækni og þær áskoranir sem fylgja áframhaldandi uppbyggingu fiskeldis.
Fulltrúar ELDI verða á staðnum með sýningarbás báða dagana og taka á móti gestum sem vilja kynna sér lausnir, búnað og þjónustu fyrirtækisins eða ræða þróun og þarfir í fiskeldi.
Myndin er fylgir fréttinni er frá Lagarlífi 2025.

