Laxeldisfyrirtækið Bremnes Seashore hefur tekið MarWall frá ELDI í notkun á Gissøy, eldisstað fyrirtækisins í Bømlo í Noregi. Kerfið hefur verið í rekstri í nokkrar vikur og fyrstu niðurstöður lofa góðu en þær benda til þess að kerfið geti dregið úr lúsasmiti og bætt aðstæður fisksins. Laxalús er ein stærsta áskorunin í laxeldi og á Gissøy er verið að prófa leið sem miðar að því að draga úr snertingu fisks við lúsalirfur áður en þörf verður á meðhöndlun.
MarWall er hálflokuð kvíalausn frá ELDI. Djúp lúsapils mynda hindrun gegn yfirborðssjó þar sem mest hætta er á laxalús, en jafnframt er súrefnisbættum sjó dælt inn í kvíina af meira dýpi. Þannig er stuðlað að stöðugum vatnsgæðum og góðum aðstæðum fyrir fiskinn.
Hjá Bremnes Seashore hefur MarWall verið sett upp í einni kví á Gissøy en aðrar kvíar eru áfram reknar með hefðbundnum hætti. Þetta gerir fyrirtækinu kleift að bera saman líffræðilega þætti og rekstur kvía með og án kerfisins og fylgjast með áhrifunum yfir lengri tíma.
Reynslan fyrstu vikurnar bendir til lágs lúsastigs og lítillar dánartíðni í MarWall kvínni og fróðlegt verður að fylgjast með framvindunni næstu mánuðina.

