Vertu skrefi á undan og skráðu þig á póstlistann

Fréttir og nýjungar frá Hampiðjunni beint í pósthólfið.

ELDI á Íslandi afhenti síðsumars umfangsmikinn eldisbúnað til fiskeldisfyrirtækisins ÍS47 ehf. á Flateyri. Afhendingin náði meðal annars til akkeris- og botnfestibúnaðar, lína, kerfisfestinga, bauja og ljósabúnaðar, auk fiskeldispoka, lúsapilsa og yfirbreiðsluneta fyrir fiskeldiskvíar.

Áður en framleiðsla búnaðarins hófst fór fram hönnun og tæknigreining þar sem tekið var mið af aðstæðum á eldissvæðinu og kröfum norska staðalsins NS 9415 um búnað til sjóeldis. Markmiðið var að tryggja að búnaðurinn væri sniðinn að aðstæðum á svæðinu og uppfyllti þær kröfur sem gerðar eru til öryggis, styrks og áreiðanleika við sjóeldi.

Eldispokarnir eru 160 metrar að ummáli og framleiddir úr HMPE Prima neti. Bæði eldispokarnir og yfirbreiðslunetin voru framleidd og sett saman hjá Hampiðjunni í Litháen. Aðrir íhlutir botnfestibúnaðarins komu að mestu frá Noregi, en lúsapilsin voru framleidd hjá ELDI Protection AS. Fyrr á árinu, frá vormánuðum og fram í júní, hafði ELDI einnig afhent ÍS47 sex eldispoka, hver um sig 90 metra að ummáli.

Undirbúningur, hönnun, framleiðsla og aðfangaöflun vegna afhendinganna gekk samkvæmt áætlun og tókst jafnframt að standa við umsamin tímamörk varðandi flutning og afhendingu búnaðarins.

Verkefnið er gott dæmi um hvernig sérþekking, framleiðslugeta og vöruframboð ólíkra fyrirtækja innan Hampiðjusamstæðunnar nýtist saman við afhendingu heildarlausna fyrir fiskeldi, allt frá hönnun og tæknilegri útfærslu til framleiðslu, aðfangaöflunar og afhendingar.