Vertu skrefi á undan og skráðu þig á póstlistann

Fréttir og nýjungar frá Hampiðjunni beint í pósthólfið.

Lykilstærðir 

Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga.

  • Rekstrartekjur þriðja ársfjórðungs voru 84,8 m€ (92,9 m€).
  • EBITDA á þriðja ársfjórðungi var 9,7 m€ (8,8 m€).
  • Hagnaður þriðja ársfjórðungs nam 1,6 m€ (1,0 m€).
  • Rekstrartekjur fyrstu níu mánaða ársins voru 268,0 m€ (277,6 m€).
  • EBITDA á fyrstu níu mánuðum ársins var 33,7 m€ (33,0 m€).
  • Hagnaður af áframhaldandi starfsemi fyrstu níu mánaða ársins nam 10,0 m€ (8,5 m€).
  • Heildareignir voru 577,0 m€ (547,5 m€ í lok 2025).
  • Vaxtaberandi skuldir voru 229,6 m€ (211,4 m€ í lok 2025).
  • Handbært fé var 24,3 m€ (26,4 m€ í lok 2025).
  • Eiginfjárhlutfall var 49,3% (49,4% í lok 2025).

Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 268,0 m€ á fyrstu níu mánuðum ársins og lækkuðu um 3,5% frá sama tímabili fyrra árs.

EBITDA félagsins hækkaði um 0,6 m€ á milli tímabila eða úr 33,0 m€ á fyrstu níu mánuðum ársins 2025 í 33,7 m€ á fyrstu níu mánuðum þessa árs.

Hagnaður af áframhaldandi starfsemi eftir skatta nemur 10,0 m€ en var 8,5 m€ á sama tímabili í fyrra.

Hagnaður tímabilsins nemur 10,0 m€ en var 6,2 m€ á sama tímabili í fyrra en á síðasta ári var farið í að endurskipuleggja hluta af framleiðslustarfsemi félagsins með að loka tveimur rekstrareiningum og var allur rekstur eininganna sýndur í sér línu í rekstrareikningi undir liðnum aflögð starfsemi eftir skatta.

Efnahagur – staða í lok september 2026

Heildareignir voru 577,0 m€ og hafa hækkað úr 547,5 m€ í árslok 2025.

Eigið fé nam 284,7 m€, en af þeirri upphæð eru 17,1 m€ hlutdeild minnihluta í eigin fé dótturfélaga.

Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í lok tímabilsins 49,3% af heildareignum samstæðunnar en var 49,4% í árslok 2025.

Vaxtaberandi skuldir námu í lok tímabilsins 229,6 m€ samanborið við 211,4 m€ í árslok 2025.

Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir í lok tímabilsins nema 53,2 m€ en námu 56,4 m€ í árslok 2025.

Samandregni árshlutareikningurinn er aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar hf., www.hampidjan.is.

Í dag verður haldin fjárfestakynning kl. 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og er streymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins, https://hampidjan.is/fjarmal/streymi

Hjörtur Erlendsson, forstjóri:

„Salan á fyrstu níu mánuðum ársins varð 268,0 m€ samanborið við 277,6 m€ á sama tímabili síðasta árs, eða minnkun um 3,5%. Ef litið er á einstaka ársfjórðunga þessa árs var fyrsti ársfjórðungur vel yfir sama ársfjórðungi 2025, eða um 8,1%, en annar ársfjórðungur var 9,3% undir og þriðji ársfjórðungurinn 8,7% lægri en sami ársfjórðungur í fyrra. Samdrátturinn í sölu á þriðja ársfjórðungi var því svipaður og á ársfjórðungnum á undan.

Minni sala á þriðja ársfjórðungi hefur þó ekki komið niður á afkomunni því rekstrarhagnaður fjórðungsins varð 20,0% hærri en á sama tímabili í fyrra og fór úr rúmum 4,7 m€ í tæpar 5,7 m€. EBITDA fjórðungsins hækkaði jafnframt úr tæpum 8,8 m€ í 9,7 m€. Hlutfallið sem var 9,5% á fjórðungnum á síðasta ári hækkaði í 11,4%. Hagnaður fjórðungsins nam tæpri 1,6 m€ samanborið við rétt rúma 1,0 m€ á síðasta ári.

Ef litið er á rekstur fyrstu þriggja ársfjórðunga ársins samanlagt má sjá að salan í heild sinni er 3,5% lægri en í fyrra. Afkoman er hins vegar betri því rekstrarhagnaður er 2,5% hærri og hefur aukist úr tæpum 21,0 m€ í tæpar 21,5 m€. EBITDA það sem af er ársins er tæplega 33,7 m€ samanborið við 33,0 m€ í fyrra, eða 2,0% hærri, og EBITDA-hlutfallið, sem var 11,9%, stendur nú í 12,6%.

Gengismunur, sem var neikvæður um rúmar 2,1 m€ í fyrra, er nú jákvæður um rúmar 0,5 m€. Ólíkt fyrra ári er engin aflögð starfsemi á þessu ári, en sá liður nam 2,3 m€ á síðasta ári. Fyrir utan hagstæðari gengismun og það að engin aflögð starfsemi er á árinu eru áhrif margvíslegra hagræðingaraðgerða farin að skila sér í betri afkomu á þessu ári, en mestu áhrifin munu væntanlega koma fram á næsta ári og á árinu 2028.

Hagnaður á fyrstu þremur ársfjórðungunum er því verulega hærri, eða 61,8%, og fer úr tæpum 6,2 m€ í rétt yfir 10,0 m€.

Sölusamdráttinn má rekja að öllu leyti til minni sölu á veiðarfærum. Sú þróun er í samræmi við væntingar, enda hefur dregið úr sölu frá síðastliðnu hausti þegar ljóst varð að verulegur niðurskurður yrði á kvótum til makríl- og kolmunnaveiða. Á grundvelli ráðgjafar Alþjóða hafrannsóknaráðsins (ICES) og samkomulags þeirra ríkja sem veiða úr viðkomandi uppsjávarstofnum munu makrílveiðar á árinu 2026 dragast saman um 47% frá fyrra ári og kolmunnaveiðar um 41%.

Þessi staða hefur orðið til þess að útgerðarfélög hafa sýnt meiri aðgát við kaup á veiðarfærum og leggja þess í stað ríkari áherslu á að lengja nýtingartíma og bæta nýtingu þeirra veiðarfæra sem þegar eru í notkun.

Samdráttur í þorskkvóta í Barentshafi hefur jafnframt haft töluverð áhrif á sölu veiðarfæra, einkum í Norður-Noregi. Kvótinn hefur verið minnkaður verulega undanfarin ár og nemur skerðingin 16% á þessu ári. Á móti hefur ýsukvóti á svæðinu verið aukinn um 18%, en sú aukning er mun minni í tonnum talið en samdrátturinn í þorskkvótanum.

Takmarkanir Evrópusambandsins á viðskiptum við rússneskar útgerðir hafa einnig dregið verulega úr sölumöguleikum á markaðnum. Þetta á meðal annars við um útgerðir sem veiða úr sameiginlegum fiskistofnum Rússlands og Noregs í Barentshafi og landa afla sínum í norskum höfnum. Reglurnar hafa verið hertar enn frekar og ná nú einnig til sölu á vörum úr stáli. Það hefur neikvæð áhrif á sölu á lásum og krókum, auk togvíra og toghlera.

Þrátt fyrir mikla minnkun í ráðlögðum veiðum á makríl og kolmunna á þessu ári þá verða veiðar á makríl 398 þúsund tonn og þar meðtalinn er 67 þúsund tonna afli Rússa.

Það er bjartara yfir kvótaráðgjöf næsta árs, því makrílkvótinn var aukinn um 102% og fer ráðlagður afli því úr 174 þús. tonnum í 353 þús. tonn á árinu 2027. Strandríkin hafa, ólíkt fyrri árum, sæst á að hlíta ráðgjöf ICES. Ef Rússar halda sínu striki og veiða áfram 67 þús. tonn þá stefnir í að heildarafli makríls á næsta ári verði 420 þús. tonn sem er 5,5% aukning frá þessu ári.

Kolmunnakvótinn var einnig aukinn umtalsvert, eða um 25%, úr 851 þús. tonnum í 1.064 þús. tonn.

Minni munur er í kolmunna en þar verður veiðin í ár 1.033 þús. tonn en veiðiráðgjöfin 1.064 þús. tonn fyrir 2027 og því aukning um 3% í kolmunnaveiðum ef samkomulag strandríkjanna heldur.

Það er búist við að útgerðarfyrirtækin fjárfesti meira í flottrollum á næsta ári, en raunin hefur verið á þessu ári, því endurnýjunarþörfin er meiri eftir aðhald í kaupum á þessu ári.

Jafnframt ber að hafa í huga að staða annarra helstu veiðistofna í Norður-Atlantshafi er almennt stöðug. Þá tengist verulegur hluti af sölu veiðarfærafyrirtækjanna botnvörpuveiðum, meðal annars á þorski, ýsu og rækju. Leyfilegur afli þorsks og ýsu á næsta ári á Norður Atlantshafi verður um 8% meiri en leyfilegt var að veiða á þessu ári.

Góð loðnuvertíð síðastliðinn vetur hafði jákvæð áhrif á íslenskar útgerðir og jók um leið notkun nóta verulega eftir tvö ár þar sem lítið reyndi á þær vegna loðnuleysis. Aukin notkun hefur kallað á töluverða vinnu við yfirferð og viðhald nótanna í sumar og haust, auk undirbúnings þeirra fyrir næstu vertíð. Sú vinna mun standa fram til loka janúar.

Framleiðsla veiðarfæraefna hjá Hampidjan Baltic í Litháen hefur haldist nokkuð stöðug þrátt fyrir samdrátt í sölu veiðarfæra, þó framleiðsla neta og kaðla hafi eðlilega dregist saman í takt við minni eftirspurn, sérstaklega yfir sumarmánuðina. Fyrirsjáanlegt er að verkefnastaðan fari batnandi eftir því sem líður á haustið, samhliða því að útgerðarfyrirtækin fara að huga að veiðarfærakaupum fyrir byrjun næsta árs.

Eins og áður hefur komið fram bárust pantanir í ofurstroffur síðla sumars sem á að afgreiða fyrir áramót. Unnið hefur verið að framleiðslu þeirra undanfarnar vikur, auk álagsprófana og vottana í 2.000 tonna slitbekk Hampidjan Baltic, og eru þær nú allar tilbúnar til afhendingar.

Hráefnisverð, einkum á pólýethýleni og nyloni, hækkaði verulega í kjölfar átakanna í Íran en hefur síðan farið lækkandi og virðist markaðurinn vera að ná auknu jafnvægi. Engar teljandi truflanir hafa orðið á hráefnisöflun í sumar, framboð hefur haldist stöðugt og afhendingar verið á áætlun.

Rafmagnskostnaður í Litháen hélst stöðugur á þriðja ársfjórðungi en hefur sveiflast lítillega til hækkunar í október og nóvember samhliða kólnandi veðri. Áhrif þess á rekstur eru þó óveruleg.

Eldi, fyrirtækið sem stofnað var innan samstæðu Hampiðjunnar í byrjun árs til að sinna fiskeldismarkaðnum, starfar á markaði þar sem töluverðar árstíðarsveiflur eru í eftirspurn. Á Norður-Atlantshafi eru nýjar fiskeldiskvíar að mestu settar út á vormánuðum og yfir sumartímann og því dregur jafnan úr sölu og pöntunum þegar líður á haustið. Undir lok hausts tekur markaðurinn síðan aftur við sér þegar fiskeldisfyrirtæki hefja undirbúning og innkaup fyrir næsta ár. Eftir rólega haustmánuði hefur tilboðsfyrirspurnum nú fjölgað verulega og mikil virkni er í tilboðsgerð.

Á sjávarútvegssýningunni IceFish 2026 hlaut Hampiðjan nýsköpunarverðlaun fyrir BioSeize í flokki nýsköpunar í fiskeldi. BioSeize er lausn sem þróuð hefur verið til að safna lífrænum úrgangi frá fiskeldi áður en hann fellur til botns.

BioSeize hefur verið í notkun hjá norska fiskeldisfélaginu Lerøy og vakið töluverðan áhuga, enda stuðlar kerfið að bættri nýtingu lífræns efnis sem fellur til við fiskeldi. Eldi kynnti einnig MarWall, hálflokaða kví þar sem súrefnisbættum sjó er dælt upp af töluverðu dýpi, og MarDeep, sem er niðursökkvanleg kví.

MarWall hefur verið í notkun hjá norska laxeldisfyrirtækinu Bremnes Seashore. Djúpt lúsapils myndar hindrun gegn yfirborðssjó, þar sem mest hætta er á laxalús, en jafnframt er súrefnisbættum sjó dælt inn í kvína af meira dýpi. Þannig er stuðlað að stöðugum vatnsgæðum og góðum aðstæðum fyrir fiskinn. Niðurstöður fyrstu prófana benda til lágs lúsastigs og lítillar dánartíðni og verður áhugavert að fylgjast með frekari niðurstöðum á næstu mánuðum.

MarDeep hefur verið fullhönnuð og prófuð í notkun og beðið er eftir leyfi til að setja fisk í kvína.

Áfram er unnið að samþættingu og hagræðingu starfseminnar eftir sameiningu fyrirtækjanna undir Eldi í byrjun ársins, með sérstakri áherslu á reksturinn í Noregi. Sú vinna er á lokastigi og í kringum áramótin verður öllum tilfærslum og uppskiptingu sem snýr að fiskeldisstarfseminni formlega lokið.

Gert er ráð fyrir að fullur rekstrarlegur ávinningur náist þegar megnið af framleiðslu fiskeldiskvía hefur verið fært til Kohinoor á Indlandi, en það ætti að gerast á komandi ári. Þrátt fyrir það er mikilvægt að halda eftir nægjanlegri framleiðslugetu í Evrópu. Slík framleiðslugeta tryggir nauðsynlegan sveigjanleika og möguleika á skjótum afhendingum þegar ófyrirséðar aðstæður í rekstri fiskeldisfyrirtækja kalla á búnað með skömmum fyrirvara.

Byggingaframkvæmdir á iðnaðarsvæðinu Auric á Indlandi hafa gengið vel. Mikill kraftur er í framkvæmdum og eru um 450 byggingarverkamenn að störfum á svæðinu. Fyrri stóra byggingin, sem er 28.000 fermetrar, er nú nær fullklædd að utan og frágangur á þaki er á lokastigi. Verið er að ljúka raflögnum innanhúss og uppsetningu sprinklerkerfis. Í byggingunni verður framleiðsla á hnútalausum netum og fullbúnum fiskeldiskvíum fyrir fiskeldisþjónustufyrirtækið Eldi, sem er að fullu í eigu Hampiðjunnar. Gert er ráð fyrir að starfsemi í byggingunni geti hafist innan fárra vikna.

Hin stóra framleiðslubyggingin, sem einnig er 28.000 fermetrar, er sömuleiðis komin vel á veg og búið er að reisa alla stálgrindina. Á næstu dögum verður byrjað að setja þak á bygginguna og klæða veggi hennar. Þar verður þráðaframleiðsla, flétting á netagarni og netahnýting sem nú er staðsett í Hampidjan Baltic í Litháen.

Þegar byggingin er tilbúin hefst flutningur framleiðslutækjanna, en vegna umfangs starfseminnar og fjölda véla verður flutningurinn framkvæmdur í áföngum og mun taka meginhluta næsta árs. Stefnt er að því að fyrstu vélarnar verði komnar í rekstur á vormánuðum og að aðrar vélar fylgi í kjölfarið jafnt og þétt fram til ársloka.

Samhliða þessu er verið að reisa 1.200 fermetra þjónustu- og mötuneytisaðstöðu fyrir starfsmenn og bygging 2.000 fermetra skrifstofuhúsnæðis hefst innan skamms. Búist er við því að heildarfjöldi starfsmanna í Auric verði um 750 þegar starfsemin verður komin í fullan gang.

Til að gefa betri mynd af framvindu framkvæmda var tekið drónamyndband af byggingarstaðnum fyrr í vikunni. Myndbandið verður aðgengilegt á fréttasíðu Hampiðjunnar eftir uppgjörskynninguna.

Þegar Hampiðjan gekk frá kaupum á 75,1% hlut í indverska neta- og kaðlafyrirtækinu Kohinoor Ropes í ársbyrjun 2025 var samið um árangurstengda viðbótarkaupgreiðslu. Samkvæmt ákvæðum kaupsamningsins skyldi viðbótarkaupgreiðsla koma til ef félagið næði tilteknum EBITDA-markmiðum á fyrstu tveimur rekstrarárunum eftir kaupin. Rekstrarár á Indlandi fylgja ekki almanaksárinu og árangurstengingin tók til rekstrarára sem enduðu 31. mars 2025 og 31. mars 2026. Samanlögð EBITDA beggja ára hjá Kohinoor fór yfir umsamið EBITDA-markmið og 1. október 2026 greiddi félagið 4,14 m€ í viðbótarkaupgreiðslu vegna kaupanna.

Frá því að Kohinoor varð hluti af samstæðu Hampiðjunnar hefur félagið sýnt sterka rekstrarþróun, styrkt stöðu sína á lykilmörkuðum og fest sig í sessi sem mikilvæg framleiðslueining fyrir önnur félög innan samstæðunnar. Árangurinn staðfestir þær forsendur sem lágu að baki kaupunum og undirstrikar það mikilvæga hlutverk sem félagið gegnir í áframhaldandi uppbyggingu samstæðunnar.

Framleiðslu- og launakostnaður eru mun hagstæðari á Indlandi en í Evrópu og mun félagið því nýta næsta ár til uppbyggingar og þess að koma framleiðslunni af stað. Búist er við að rekstrarlegur ávinningur af flutningnum fari að koma fram á árinu 2027 og skili sér að fullu á árinu 2028.”

Viðhengi:

Hampidjan hf. Arshlutareikningur 3F 2026.pdf