Hampiðjan stendur fyrir árlegri ferð í tilraunatankinn í Hirtshals í Danmörku dagana 24.–27. nóvember 2026. Ferðirnar hafa um árabil verið fastur liður í starfsemi Hampiðjunnar og skapað góðan vettvang fyrir faglega umræðu, miðlun reynslu og kynningu á nýjungum í veiðarfærum og veiðitækni.
Megináhersla ferðarinnar verður sem fyrr dagskrá í tilraunatankinum í Hirtshals, þar sem þátttakendur fá tækifæri til að sjá mismunandi gerðir veiðarfæra við aðstæður sem líkja eftir notkun þeirra í sjó. Þar verða kynntar nýjungar og þróunarverkefni í botn- og flottrollum og öðrum búnaði sem tengist veiðum og ein af þeim nýungum er Flow Gear sem kemur í stað rockhopper.
Tilraunatankurinn gefur einstakt tækifæri til að skoða hvernig breytingar á hönnun og uppsetningu veiðarfæra hafa áhrif á lögun þeirra, opnun, straumflæði og hegðun við mismunandi toghraða. Jafnframt gefst þátttakendum færi á að ræða beint við sérfræðinga Hampiðjunnar og samstarfsaðila um reynslu af búnaði og þær áskoranir sem mæta þeim við veiðar.
Eins og undanfarin ár verður dagskráin ekki bundin við tilraunatankinn. Fyrirhugaðar eru heimsóknir til fyrirtækja í Hirtshals og Skagen þar sem þátttakendur fá innsýn í starfsemi sem tengist sjávarútvegi, skipum og veiðarfærum. Endanleg dagskrá heimsóknanna verður kynnt þegar nær dregur.
Ferðirnar hafa ekki síður reynst mikilvægur vettvangur fyrir samtal og samskipti fólks úr greininni. Skipstjórar, stýrimenn, útgerðarstjórar, netagerðarmenn og tæknifólk fá þar tækifæri til að bera saman reynslu, ræða þróun veiðarfæra og skiptast á hugmyndum við starfsfólk Hampiðjunnar og aðra þátttakendur.
Að venju verður einnig sameiginleg dagskrá og kvöldverðir að loknum vinnudegi í tankinum.
Á föstudeginum heldur hópurinn til Kaupmannahafnar þar sem ferðinni lýkur með hátíðarkvöldverði um kvöldið. Flestir þátttakendur halda heim á laugardeginum, en einnig er mögulegt að ljúka ferðinni fyrr og halda heim strax á föstudag. Sumir kjósa að fá maka sinn til Kaupmannahafnar og nýta tækifærið til að dvelja þar yfir helgina. Á þessum árstíma er jólastemningin farin að setja svip sinn á borgina og því tilvalið að nýta ferðina til að njóta hennar áður en haldið er heim.
Tankferðir Hampiðjunnar hafa jafnan verið vel sóttar og því er ráðlegt að skrá sig tímanlega. Áhugasamir eru hvattir til að taka dagana 24.–27. nóvember frá og hafa samband til að tryggja sér sæti.
Nánari upplýsingar um dagskrá, fyrirkomulag og skráningu veita Jónas Þór Friðriksson, jonas@hampidjan.is, og Einar P. Bjargmundsson, eb@hampidjan.is.

