Vertu skrefi á undan og skráðu þig á póstlistann

Fréttir og nýjungar frá Hampiðjunni beint í pósthólfið.

Hampiðjan Advant hefur samið við danska fyrirtækið Cadeler um framleiðslu og afhendingu á öflugum lyftistroffum fyrir East Anglia TWO, eitt af stóru vindorkuverkefnunum sem nú eru í uppbyggingu í Norðursjó undan austurströnd Englands.

Cadeler er leiðandi alþjóðlegt fyrirtæki á sviði uppsetningar á vindmyllum á hafi úti. Fyrirtækið sérhæfir sig í flutningi, uppsetningu, rekstri og viðhaldi á aflandsvindmyllum og undirstöðum þeirra.

Stroffurnar verða framleiddar hjá Hampiðjan Baltic í Litháen úr HMPE ofurefni og eru sérstaklega hannaðar fyrir þær miklu þungalyftingar sem fylgja uppsetningu undirstaða og vindmylla á hafi úti. Hönnun lyftistroffanna byggist á ítarlegri verkfræðilegri greiningu þar sem tekið er tillit til álags, stærðar og notkunaraðstæðna í hverju verkefni.

Stærstu stroffurnar sem Hampiðjan framleiðir fyrir East Anglia TWO eru 190 mm í þvermál og 64 metra langar, með 4.000 tonna brotþol. Þær verða notaðar um borð í Wind Ace, nýju uppsetningarskipi Cadeler, við uppsetningu á vindmyllugarðinum.

Samningurinn er framhald af góðu samstarfi Hampiðjan Advant og Cadeler við Hornsea 3 verkefnið fyrr á árinu. Þar afhenti Hampiðjan búnað til Cadeler vegna uppsetningar undirstaða fyrir Ørsted vindmyllugarðinn. Árangurinn af því verkefni lagði grunn að áframhaldandi samstarfi fyrirtækjanna og nýja samningnum vegna East Anglia TWO.

Hornsea 3 er 2,9 GW vindorkuver Ørsted í Norðursjó og verður samkvæmt áætlunum stærsta einstaka vindorkuver heims á hafi úti þegar það verður fullbúið. Cadeler annast flutning og uppsetningu allra undirstaða fyrir verkefnið og hluta vindmyllanna.
East Anglia TWO er í eigu ScottishPower Renewables og verður reist í sunnanverðum Norðursjó, rúmlega 30 km undan strönd Suffolk. Áætlað afl vindorkuversins er allt að 960 MW og gert er ráð fyrir að þar verði allt að 75 vindmyllur.

Nýi samningurinn við Cadeler styrkir enn frekar stöðu Hampiðjan Advant sem birgis sérhæfðra lausna fyrir þungar lyftingar í ört vaxandi vindorkuiðnaði á hafi úti.