Skip to main content
Financial

Sex mánaða árshlutareikningur samstæðu Hampiðjunnar 2015

By 27/08/2015No Comments

Allar fjárhæðir í evrum og samanburðartölur í sviga.

  • Rekstrartekjur jukust um 12,5% og voru 29,6 m€ (26,4 m€).
  • Hagnaður fyrir fjárliði (EBITDA) var 4,7 m€ (3,2 m€).
  • Hlutdeild í afkomu HB Granda var 1,9 m€ til tekna (0,9 m€ til tekna).
  • Hagnaður tímabilsins var 5,4 m€ (2,6 m€).
  • Heildareignir voru 98,0 m€ (95,1 m€ í lok 2014).
  • Vaxtaberandi skuldir voru 21,6 m€ (22,8 m€ í lok 2014).
  • Eiginfjárhlutfall var 67% (66% í lok 2014).

Rekstur

Rekstrartekjur samstæðunnar voru 29,6 m€ og jukust um 12,5% frá fyrstu sex mánuðum fyrra árs.  Sala jókst hjá öllum félögum samstæðunnar að Hampidjan Canada undanskildu en þar var lítilsháttar samdráttur.

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var 12,5% af rekstrartekjum eða 3,7 m€ en var 8,5% fyrir sama tímabil á fyrra ári eða 2,2 m€.   

Fjármunatekjur ásamt hlutdeild í hagnaði HB Granda, að frádregnum fjármagnsgjöldum, voru 1,9 m€ til tekna en var 0,6 m€ til tekna fyrstu sex mánuðina á fyrra ári.

Hagnaður tímabilsins var 5,4 m€ en var 2,6 m€ sama tímabil fyrra árs. 

Efnahagur

Heildareignir voru 98,0 m€ í lok tímabilsins.  Eigið fé nam 65,8 m€,  en af þeirri upphæð eru 8,3 m€ hlutdeild minnihluta í eigin fé Swan Net Gundry á Írlandi, Fjarðaneta á Íslandi, Nordsötrawl í Danmörku og Swan net USA.  Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í lok júní 67% af heildareignum samstæðunnar.

Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 21,6 milljónum en skuldirnar í byrjun árs voru 22,8 m€.

Hjörtur Erlendsson, forstjóri: 

„Salan fyrri hluta þessa árs hefur verið mjög góð og framar vonum á öllum mörkuðum nema Kanada þar sem minnkandi rækjukvóti dró örlítið úr sölunni miðað við síðasta ár. Fyrri hluti síðasta árs var frekar erfiður og sala almennt minni en búist var við en úr rættist þegar leið fram á haustið og sú aukning hefur haldist fram að þessu sumri.  Rekstrarhagnaður, fyrir fjármagnsliði og hlutdeild í ágætum hagnaði HB Granda, var umtalsvert hærri en fyrir sama tímabil síðasta árs.“

Árshlutareikninginn má nálgast hér.