Index: 0

Hampiðjan - upplýsingar vegna uppgjörs fyrra árshelmings 2020

26.08.2020

Drög að uppgjöri fyrra árshelmings 2020 liggja nú fyrir og samkvæmt þeim mun sala samstæðu Hampiðjunnar á tímabilinu dragast saman um 5,5% á milli ára og nema um að bil 80,6 m. evra samanborið við 85,3 m. evra á sama tímabili árið áður. Áhrif Covid-19 skýra samdrátt í tekjum milli tímabilana.

EBITDA félagsins eykst hins vegar á milli tímabila um 17,5% og nemur um 14,0 m. evra samanborið við 11,9 m. evra árið áður. 

Hagnaður félagsins eykst einnig á milli tímabila og nemur um það bil 7,9 m. evra samanborið við 6,4 m. evra á sama tímabili árið 2019.

Uppgjörið fyrir fyrra árshelming er enn í vinnslu og bíður könnunar endurskoðenda. Framangreindar upplýsingar gætu því tekið breytingum þar til uppgjörið verður birt þann 26. ágúst nk.

Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson, forstjóri, í síma 664-3361

Please fill in the below details in order to view the requested content.