Index: 0

Niðurstaða aðalfundar 21. maí 2010

21.05.2010

Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 21. maí, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2009 samþykkt samhljóða.

Sjálfkjörið var í félagsstjórn.

Formaður félagsstjórnar:
Bragi Hannesson

Meðstjórnendur:
Árni Vilhjálmsson
Jón Guðmann Pétursson
Kristján Loftsson 
Sigurgeir Guðmannsson

Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar samhljóða:

1. Tillaga um greiðslu arðs.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 21. maí 2010 samþykkir að greiddur verði 12% arður vegna ársins 2009, alls að fjárhæð kr. 59.591.167. Arðurinn verði greiddur í viku 23. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 21. maí., þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 27. maí. Arðleysisdagurinn er 25. maí.

2. Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 700.000, formaður taki þrefaldan hlut.

3. Tillaga um endurskoðunarfélag.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. kýs PricewaterhouseCoopers hf. endurskoðunarfélag félagsins.

4. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 21. maí 2010 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupverð hluta skal vera hæst 15% yfir síðasta þekktu söluverði á First North markaðinum áður en kaup eru gerð.

Please fill in the below details in order to view the requested content.