Index: 0

Aðalfundur verður haldinn föstudaginn 21. maí

12.05.2010

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 21. maí 2010 og hefst kl. 16:00.

Á dagskrá fundarins verða:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins
  2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga
  3. Önnur mál, löglega upp borin

Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf aðalfundar.

Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.

Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega.

Please fill in the below details in order to view the requested content.