Index: 0

Cosmos A/S, dótturfyrirtæki Hampiðjunnar kaupir netaverkstæðið Herman Tomsens Vod- og Trawlbinderi ApS

18.12.2014

Cosmos A/S, sem er dótturfyrirtæki í 100% eigu Hampiðjunnar hf.,  hefur  keypt netaverkstæðið Herman Tomsens Vod- og Trawlbinderi ApS í Strandby á Jótlandi í Danmörku.   Kaupverðið er DKK 1,5 milljónir ásamt árangurstengdum greiðslum sem væntanlega koma til með að liggja á bilinu DKK 0,2-0,4 milljónir.

Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar:

Þessi kaup styrkja enn frekar stöðu Hampiðjan Group á danska veiðarfæramarkaðinum, sérstaklega á austurströnd Jótlands.   Við erum nú með 4 netaverkstæði í Danmörku og getum því veitt breiðum hópi viðskiptavina þjónustu í þeirra heimahöfn.

Please fill in the below details in order to view the requested content.