Index: 0

Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf.

31.05.2021

Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 28. maí 2021, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2020 samþykkt samhljóða.

Sjálfkjörið var í félagsstjórn.

Formaður félagsstjórnar

Vilhjálmur Vilhjálmsson

Meðstjórnendur

Kristján Loftsson
Auður Kristín Árnadóttir
Guðmundur Ásgeirsson
Sigrún Þorleifsdóttir

Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar:  

Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að á árinu 2021 vegna rekstrarársins 2020 verði greiddar 1,25 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 625 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 23. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 28. maí 2021, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 1. Júní. Arðleysisdagurinn er 31. maí.

Tillaga um þóknanir fyrir komandi starfsár

Þóknun til stjórnarmanna verði 235.000 kr. á mánuði, formaður fái þrefaldan hlut.

Tillaga um endurskoðunarfélag

Endurskoðunarfélag verði PricewaterhouseCoopers ehf.

Please fill in the below details in order to view the requested content.