Index: 0

Viljayfirlýsing um kaup Thyboron Skibssmedie A/S á hleradeild Hampiðjunnar undirrituð

22.09.2011

Hampiðjan og Thyboron Skibssmedie A/S hafa undirritað viljayfirlýsingu um að Thyboron kaupi hleradeild Hampiðjunnar. Um er að ræða kaup á hugverkum svo sem teikningum, hönnun, vöruheitum ásamt umsóttum og útgefnum einkaleyfum tengdum toghlerum.  Kaupverðið, sem er trúnaðarmál, mun að hluta til verða í formi eignarhlutar í Thyboron Skipssmedie A/S.  Stefnt er að því að skrifa undir samning um kaupin á næstu vikum.   

Thyboron Skipssmedie A/S var stofnað árið 1967 af Börge Stausholm Andreasen og hefur fyrirtækið frá þeim tíma sérhæft sig í smíði toghlera. Thyboron er einn stærsti toghleraframleiðandi heims og hefur framleitt og selt um 280 hlerapör fyrstu níu mánuði ársins.

Jón Guðmann Pétursson, forstjóri Hampiðjunnar:  

Við erum afar ánægðir með að sameina krafta okkar við Thyboron. Við höfum lagt mikið upp úr þróun á hlerum og erum vissir um að Thyboron mun halda því starfi áfram af krafti. Þá eignast þeir með kaupunum áhugaverðar umsóknir um einkaleyfi á tækni fyrir toghlera. Hampiðjan mun selja hlera frá Thyboron á þeim mörkuðum þar sem slíkt verður talið hagkvæmt fyrir viðskiptavini okkar. Við munum nú einbeita okkur að þróun á veiðarfærum fyrir sjávarútveg og svo framleiðslu og sölu á ofurtógi fyrir olíuiðnað. Þar er og verður í mörg horn að líta.  

Please fill in the below details in order to view the requested content.