Magnet Grey Fléttað, þétt pólýetýlennet með hámarksstyrkleika miðað við þvermál til að lágmarka viðnám í togi. Trollgarnið er kringlótt og nett og kjarninn og ytra lag er hannað til þess að hámarka brotstyrk hnúta.
Magnet Yellow Fléttað trollgarn með tiltölulega þykkum kjarna þótt meginhluti fjölgirnis sé í ytra lagi. Útkoman er kringlótt trollgarn sem hefur minna þvermál, er stífara, með mjög stöðuga hnúta og mikið slitþol.
Magnet Green Tiltölulega lausfléttað net með afar stöðugum hnútum og miklu slitþoli. Meginhluti fjölgirnisins er í ytra laginu en aðeins lítill hluti í kjarnanum til að lágmarka hnútastærð.
Magnet Standard Traust gæðanet úr þéttu pólýetýleni þar sem efnisval, blöndun og fléttun er hönnuð til þess að ná fram sem mestum gæðum fyrir sem hagstæðast verð.
Magnet Compact Fyrirferðarlítið og kringlótt trollgarn þar sem eiginleikar fjölgirnis og samsetning garnsins gefa hámarksendingu fyrir hagstætt verð.